Skilmálar þessir gilda um notkun þína á www.nordicphotos.com. NordicPhotos áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum án fyrirvara. Þessa skilmála er alltaf hægt að nálgast á vefsíðunni með því að smella á hlekkinn Skilmálar neðst á hverri síðu. Allt efni á vefsíðu NordicPhotos; textar, grafík, merki, myndir, hljóðskrár og hugbúnaður, er eign NordicPhotos, eða í eigu samstarfsaðila NordicPhotos, og lýtur notkun á því höfundarréttarlögum.
Allar ljósmyndir í gagnagrunni NordicPhotos eru háðar höfundarrétti ljósmyndaranna sem þær eiga og njóta þannig verndar íslenskra og alþjóðlegra laga. Afritun, í hvaða formi sem er, af hluta eða öllum ljósmyndum sem hýstar eru á vefsíðu NordicPhotos, eru stranglega bannaðar nema að þú hafir keypt notkun á viðkomandi ljósmynd. Sú notkun sem greitt hefur verið fyrir á að vera samkvæmt skilmálum í kaupsamningi milli þín (kaupanda) og NordicPhotos. Gagnagrunnur NordicPhotos, söfn og uppsetning á öllu efni innan hans, lýtur lögum um höfundarrétt og er algerlega í eigu NordicPhotos.
Allur hugbúnaður sem notaður er á vefsíðu NordicPhotos er annað hvort í eigu NordicPhotos eða hugbúnaðarframleiðenda sem látið hafa NordicPhotos í té hugbúnað er varinn er af höfundarréttarlögum. Hugbúnaður á vefsíðu NordicPhotos er ætlaður til þess að skoða, leita, velja og kaupa ljósmyndir af NordicPhotos. Önnur notkun s.s. afritun, breytingar, dreifing, færsla, endurdreifing eða nokkur önnur notkun á hugbúnaðinum er með öllu óheimil án skriflegs leyfis frá NordicPhotos.
Við hjá NordicPhotos virðum höfundarrétt. Teljir þú að eitthvert efni eða ljósmynd sem þú telur vera í þinni eigu sé í notkun á vefsíðu NordicPhotos án þess að þín sé getið; eða ef þú telur að eitthvert efni eða ljósmynd hafi verið afrituð eða dreift án þess að rétts höfundar sé getið, biðjum við þig að hafa samband við okkur. NordicPhotos vörumerkið er skráð vörumerki og í eigu NordicPhotos ehf. á Íslandi og má ekki nota í tengslum við neina aðra vöru eða þjónustu án skriflegs leyfis frá NordicPhotos ehf.
Persónulegar upplýsingar sem okkur falla í té varðandi notkun þína á NordicPhotos vefsíðunni verða meðhöndlaðar samkvæmt lögum um persónuvernd á hverjum tíma. Með notkun á vefsíðu NordicPhotos gefur þú leyfi til að NordicPhotos noti hluta eða allar af þeim upplýsingum er varða þá notkun til markaðsrannsókna, sem við munum nýta okkur til að bjóða betri og skilvirkari þjónustu.
NordicPhotos mun t.d. nota þessar upplýsingar til að efla þjónustu sína við þig, til að senda þér fréttir og skilaboð eða láta þig vita af nýjungum í þjónustu okkar. NordicPhotos áskilur sér einnig rétt til að nota þessar upplýsingar með samstarfsaðilum sínum til að auka gæði og fjölbreytni þjónustu þeirra. Við munum hinsvegar ekki afhenda þessar upplýsingar þriðja aðila. Þú getur beðið um að sjá upplýsingarnar sem við geymum um þig eða sem hægt er að rekja beint til þín. Ef þú sérð að upplýsingar um þig eru rangar eða ófullnægjandi hefurðu rétt til að fá þær leiðréttar, eða eytt, þér að kostnaðarlausu.