Um NordicPhotosNordicPhotos er myndabanki sem býður myndefni frá yfir 500 atvinnuljósmyndurum og selur það vítt og breitt um heiminn, auk þess að hafa umboð fyrir fjölda annarra myndasafna á Norðurlöndunum.
NordicPhotos var stofnað árið 2000 á Íslandi. Fyrirtækið hóf að færa út kvíarnar árið 2003 og hefur fest sig í sessi sem einn stærsti myndasöluaðili Norðurlanda. NordicPhotos keypti Mira Bildarkiv og IMS Bildbyrå árið 2003, þá Tiofoto árið 2004 og Greatshots 2006. Nýjasta viðbótin er norski myndasöluaðilinn GV-Press sem NordicPhotos keypti árið 2007. Að auki hefur NordicPhotos sett á laggirnar danska myndasafnið Siluet og Royalty Free myndasafnið Simply North. Við sameiningu allra þessara mismunandi myndasafna er orðið til eitt safn sem telur 130.000 stafrænar myndir frá rúmlega 500 ljósmyndurum. Þetta safn er eitt það besta og fjölbreyttasta sem finna má á Norðurlöndunum. Myndasöfn NordicPhotos má nálgast á vefsíðu fyrirtækisins sem og hjá yfir 80 dreifingaraðilum víðs vegar um heiminn.
NordicPhotos sér einnig um dreifingu og sölu mynda frá öðrum stórum myndabönkum víðsvegar á Norðurlöndunum, bæði Rights Managed og Royalty free myndefni. Alls veitir NordicPhotos viðskiptavinum sínum aðgang að tugum myndasafna og milljónum mynda.